Allar samgöngur við bæinn eru greiðar, hvort sem er í lofti eða á láði. Flugfélag Íslands heldur uppi reglulegu flugi mörgum sinnum á dag milli Reykjavíkur og Akureyrar . Norlandair býður upp á áætlunarflug t.d. til Grímseyjar. Boðið er upp á áætlunarferðir milli Akureyrar og Reykjavikur hjá Sterna einu sinni til tvisvar sinnum á dag. SBA-Norðurleið er með áætlunarferðir til nokkurra þéttbýlisstaða á Norður og Austurlandi. Innan Eyjafjarðarsvæðisins er boðið upp á áætlunarferðir milli Akureyrar, Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Ferjurnar Sæfari og Sævar halda uppi áætlunarferðum til Grímseyjar og Hríseyjar.
Strætisvagnar Akureyrar:
Athugið að þegar til Akureyrar er komið þá er ókeypis með öllum
strætisvögnum bæjarins. Hér má sjá annars vegar yfirlitskort og hins vegar
stakar leiðir.
Í samstarfi við Strætó b.s. í Reykjavík hefur verið settur upp upplýsingavefur fyrir Akureyri, http://www.straeto.is/Þar getur fólk skráð brottfararstað og áfangastað, valið brottfarar- eða komutíma, og fengið upplýsingar um þá möguleika sem í boði eru.
- Opnunartímar: Ekið frá kl. 6.25 til 23.03 alla virka daga
- Heimilisfang: Rangárvöllum, 600 Akureyri
- Sími: 462 4929 (skrifstofa)
- Fax: 462 4930
- Netfang: svak@akureyri.is
Hlutverk Strætisvagna Akureyrar er að annast almenningssamgöngur á Akureyri með akstri vagna í samræmi við tímasett leiðakerfi. Ennfremur er rekin ferliþjónusta á vegum SVA fyrir fatlaða og aldraða einstaklinga sem ekki geta nýtt sér þjónustu SVA. Ferliþjónustan hefur til þess sér útbúna bíla og er ekið frá kl. 7.30 til 23.00 alla virka daga. Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur sér um símsvörun fyrir ferliþjónustuna. Allar beiðnir um akstur eða breytingar á ferðum þurfa að tilkynnast daginn áður en akstur fer fram í síma 462 5959 fyrir kl. 15.30.
Starfsemi SVA er eins og fram kemur á undan fólgin í að reka strætisvagna til almenningsnota. Á vegum strætisvagnanna er rekið verkstæði til viðhalds vagnanna og til að þrífa þá að loknum vinnudegi eða á öðrum tímum ef ástæða er til.



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.