
Ýmsir möguleikar eru á ferðum milli Akureyrar og Reykjavíkur og á aðra staði innan norðurlandsins.
REYKJAVÍK - AKUREYRI
FLUG: Flugfélag Ísland heldur uppi tíðu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar. Flugferð tekur um 45 mínútur
og hægt er að fá nánari upplýsingar og bóka far á Flugfelag
Íslands
RÚTA: Áætlunarferðir til Akureyrar frá Reykjavík eru farnar frá umferðarmiðstöðinni í Reykjavík og
hjá umferðamiðstöðinni á Akureyri. Hægt er að sjá áætlanir á heimasíðunni sterna.is eða í síma 551 1166.
Yfirleitt leggja langferðarbílarnir af stað frá Reykjavík og Akureyri um kl. 8.30 að morgni, með komu á áfangastað um kaffileytið.
REYKJAVÍK - AKUREYRI UM KJÖL
Rúta: Á sumrin er boðið upp á rútuferðir um Kjöl milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ferðirnar eru farnar frá umferðarmiðstöðinni í Reykjavík og frá umferðamiðstöðinni á Akureyri. SBA-Norðurleið og Sterna eru með áætlunarferðirnar.
AKUREYRI - GRÍMSEY
Flug: Norlandair heldur uppi áætlunarflugi á nokkra staði innanlands m.a. til Grímseyjar u.þ.b. 3 sinnum í viku yfir veturinn og
daglega yfir sumarið. Einnig býður Norlandair í samstarfi við Mýflug upp á ýmiskonar útsýnisflug. Áætlunarflug Nordlandair og útsýnisflug.
Ferja: Hægt er að sigla til Grímseyjar frá Dalvík.. sjá nánar á áætlun ferju til Grímseyjar.
Ferjan er um 3 klst að sigla hvora leið.
Ferjan stoppar u.þ.b. tæpan klukkutíma í eynni yfir vetrartímann (háð því hvernig gengur að lesta skipið), en fjóra
tíma yfir sumartímann (frá 15.maí til 31.ágúst).
AKUREYRI - DALVÍK - ÓLAFSFJÖRÐUR
Rúta: Boðið er upp á áætlunarferðir milli Akureyrar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar allt árið. Sjá
nánari upplýsingar um áætlun á þessari leið hjá Sterna/Bílar og fólk vetur 2011/2012, sumar 2012 eða í síma Inga Rúnar: 895 7922 eða Ómar 898
5156.
Brottför frá Akureyri er við Umferðamiðstöðina, Hafnarstræti 82. Athuga að panta þarf brottfarir á laugardögum. Lágmark 2
farþegar.
AKUREYRI - HRÍSEY
Rúta: Boðið er upp á áætlunarferðir milli Akureyrar og Árskógssandar, sjá nánari upplýsingar á
heimasíðu leyfishafa.
Ferja: Boðið er upp á áætlunarferðir milli Árskógssands og Hríseyar. Sjá
nánar áætlun ferju til Hríseyjar.
AKUREYRI - HÚSAVÍK &
AKUREYRI - MÝVATN - EGILSSTAÐIR &
AKUREYRI - RAUFARHÖFN - ÞÓRSHÖFN
Rúta: Boðið er upp á áætlunarferðir milli Akureyrar og Húsavíkur. Akureyrar, Mývatns og Egilsstaða. Akureyri, Raufarhöfn og Þórshafnar allt árið. Þessar ferðir eru eknar af SBA Norðurleið. Sjá nánar áætlun á heimasíðu þeirra eða upplýsingar í síma 5500 700.
AKUREYRI - ÁSBYRGI - DETTIFOSS - AKUREYRI &
MÝVATN - KRAFLA - DETTIFOSS - MÝVATN &
MÝVATN - HÚSAVÍK
Rúta: SBA-Norðurleið er með áætlunarferðir yfir sumartímann á leiðum sem að ekki heyra undir sérleyfi sem veitt eru af Samgöngu-ráðuneyti. Þessar leiðir eru
Leið 661: Mývatn - Krafla -
Dettifoss
Leið 661a: Dettifoss - Krafla -
Mývatn
Leið 650: Mývatn -
Húsavík
Leið 650a: Húsavík - Mývatn
Leið 641: Akureyri - Ásbyrgi - Dettifoss
Leið 641a: Dettifoss - Ásbyrgi - Akureyri
AKUREYRI - HLÍÐARFJALL SKÍÐASVÆÐI
Á veturna er boðið upp á áætlunarferðir upp í skíðasvæðið í Hlíðarfjalli.
Farinn er hringur um Akureyri með nokkrum stoppum og síðan beint upp í fjallið. Nánari upplýsingar um áætlun, verð og
stoppistöðvar má finna á heimasíðu
skíðarútunnar.
STÆTISVAGNAR AKUREYRAR
Athugið að þegar til Akureyrar er komið þá er ókeypis með öllum strætisvögnum bæjarins. Ekið frá kl. 6.28 til 22.36 alla virka daga, akstur um helgar er árstíðarbundinn, sjá nánar um tíma og leiðir í Leiðabók strætó.
EINKABÍLL OG BÍLASTÆÐI
Ef ferðast er á einkabíl þá er rétt að muna að verða sér úti um bílastæðaklukkur. Þær er hægt að fá í Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Hofi, bönkum, verslunum og á bensínstöðum. Með réttri notkun klukkanna er frítt í bílastæði og eru leiðbeiningar um notkun prentaðar á þær. Gjaldfrjáls tími merktra bílastæða fer eftir svæðum, alt frá 15 mínútum upp í nokkrar klukkustundir.



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.