Millilandaflug

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Millilandaflug

 Flug í gegnum Keflavík:

Icelandair_2011

Sumarið 2012 mun Icelandair bjóða upp á flug til og frá Akureyri um Keflavíkurflugvöll á ýmsa áfangastaði sína í Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskiptavinir bóka flugið og innrita sig alla leið. Flogið verður allt að fjórum sinnum í viku frá 7. júní til 30. september 2012.  Brottför frá Akureyrarflugvelli verður klukkan 14.30 og lending á Keflavíkurflugvelli klukkan 15.20. Tímasetningin gerir það að verkum að fjölmargiráfangastaðir

Icelandair liggja vel við þessu tengiflugi, til dæmis New York, Boston, Washington, Orlando, Seattle og Halifax í Norður-Ameríku og London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Amsterdam, Brussel og Osló í Evrópu. Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Akureyrar er klukkan 16.20 og lending á Akureyri kl. 17.10. Þannig skapast góð tenging við komutíma frá helstu áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Akureyrarflugið er bókanlegt sem hluti af flugi Icelandair til og frá Íslandi og mun félagið leigja Fokker 50 flugvél af systurfyrirtækinu Flugfélagi Íslands til þess. Sjá nánar www.icelandair.is

Allt árið er boðið upp á daglegt áætlunarflug frá fjölbreyttum áfangastöðum til Keflavíkur. Með Icelandair, SAS ofl. Nánari upplýsingar fást á eftirfarandi vefsíðum:

Icelandair: www.icelandair.is
SAS: www.flysas.com

 Innanlandsflug:

Frá Keflavik er um 45 mínútna akstur til Reykjavíkurflugvallar og flugferðin með Flugfélag Íslands til Akureyrar tekur eingöngu um 45 mínútur.

 
SA SA 2m / s -1°
  • Mynd 3

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.