- Fjórði þátturinn af tíu sem sjónvarpsstöðin og framleiðslufyrirtækið N4 gerir um afmælisbarnið Akureyri er sýndur í 29. maí. Þættirnir bera heitið "Ég sé Akureyri" og er maímánuður helgaður íþróttum.
- Það er mikil uppskeruhátíð í maí og munu leik- og grunnskólar bæjarins skarta sínu fegursta enda mikið og gott starf að baki allan veturinn.
- Listahátíðin List án landamæra -hátíð þar sem fatlaðir og ófatlaði mætast í list sinni. Hátíðin fer fram 3.-11. maí. Opnunardagskrá hátíðarinnar er fimmtudaginn 3. maí klukkan 14-15 í Hofi.
- Eyfirski safnadagurinn er haldinn laugardaginn 5. maí - þemað að þessu sinni er tónlist. Söfn er opin 13-17 og er frítt inn.
- Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verður í evróvisjóngírnum í maí og verða tónleikar í Hofi með nokkrum af þeim perlum sem flestir ef ekki allir þekkja úr þessari keppni.
- Vorsýning Point dansstudio er í menningarhúsinu Hof í maímánuði og verður án efa mikið um dýrðir.
- Íslandspóstur gefur út tvö frímerki í tengslum við Akureyri, annað þeirra tengist sjálfu afmælisárinu og hitt er gefið út í tilefni af 100 ára afmæli Lystigarðsins.
- Ráðstefna um heilsueflingu eldri borgara haldin í Háskólanum á Akureyri 24. maí kl 13-16.30 "Við göngum á móti hækkandi sól".
- Skákþing Norðlendinga verður haldið 25.-28. maí. Sjá nánar hér.
-
Dvalar – og hjúkrunarheimilið Hlíð á stórafmæli á þessu ári – heimilið var vígt á 100 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar 29. ágúst 1962 og er því 50 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælisárinu ætla heimilin að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með málstofu síðasta mánudag hvers mánaðar kl. 12:15 - 12:45 í samkomusalnum í Hlíð. Fengnir verða fyrirlesarar úr ólíkum áttum til þess að fjalla um athyglisverð málefni sem varða efri ár. Allir eru velkomnir - innan öldrunarheimilanna sem utan.
Flýtilyklar
Maí
Leit
Svæði
V 2m / s
+5.2°


Akureyrarstofa