Til baka

Siglingar

Nökkvi félag siglingamanna á Akureyri er félag áhugafólks um sjósport hverskonar. Megin starfseminn undanfarina ára hefur verið skútusiglingar og að bjóða upp á sumarnámskeið fyrir börn.  Áður fyrir var öflug seglbrettastarfsemi og einnig kajakdeild við félagið.
Eitt megin markmið félagsins er að vinna að hagsmunum þeirra sem nota Pollinn og Eyjafjörðinn sem útvistarsvæði.

Við hvetjum alla áhugamenn um sjó- og vatnasport að taka þátt í félaginu og stuðla þannig að betri útivist og öryggi á Pollinum sem og  öðrum höfum.

Um sögu félagsins:
Félagið var stofnað 8. okt . 1963. Hlaut fyrst nafnið Sjóferðafélag Akureyrar sem síðar var breytt árið 1979  í Nökkvi, félag siglingamanna Akureyri.  Félagið flutti 1981 í Tunnuverksmiðjuna og starfaði þar þangað til hún var rifin 1993. Eftir smá þvæling niður á Eyri flutti félagið loks í lítið hús við Höefpnersbryggju.  Árið 2018 breytti klúbburinn nafni sínu í Siglingaklúbburinn Nökkvi. Árið 2020 hófst byggin á nýrri og glæsilegri aðstöðu á félagsaðstöðu fyrir félagið og er stefnt á að hægt verði að taka aðstöðuna í notkun sumarið 2021.

 

Nánari upplýsingar

Heimasíða: nokkvi.iba.is
Sími: +354 6947509
Netfang: siglingaklubburinn@gmail.com