Má bjóða þér frítt í bíó í tilefni Hinsegin hátíðarinnar á Norðurlandi eystra miðvikudaginn 18. júní kl. 20.00 í Sambíóunum Akureyri?
Portrait of a Lady on Fire
Hin unga listakona Marianne er ráðin í verkefni að mála portrett af Héloïse, tilvonandi brúði ríkrar fjölskyldu, sem hefur ítrekað neitað að sitja fyrir því hún neitar að giftast manninum sem til stendur að binda hana við. Marianne dulbýr sig sem vinnukonu til að ávinna sér traust hennar en ekki líður á löngu þar til hún verður ástfangin af fyrirsætunni.
Myndin keppti um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni Cannes 2019 þar sem hún hreppti Queer Palm verðlaunin en um er að ræða fyrstu kvikmyndina sem leikstýrð er af konu sem hlýtur þau verðlaun. Einnig hlaut Celine Sciamma verðlaun fyrir besta handritið á hátíðinni.
Myndin verður sýnd á frönsku með íslenskum texta.
Ekki við hæfi yngri en 12 ára.
Aðalhlutverk: Noémie Merlant, Adèle Haenel, Luàna Bajrami
Leikstjóri: Céline Sciamma
Lengd: 119 mín.

Sýningin er í boði Bíó Paradís og Sambíó á Akureyri.
Sýningin er hluti af Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Norðurlandi eystra, Hinsegin daga í Hrísey og samtakanna Hinsegin Norðurland. Hátíðin er styrkt af Uppbyggingasjóði SSNE. Frekari upplýsingar um hátíðina og yfirlit yfir alla viðburði er að finna á síðunni www.hinseginhatid.is