Akureyrarbær, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík standa fyrir Súpufundi atvinnulífsins þriðjudaginn 16. september kl. 11:30 í DriftEA við Ráðhústorg.
Á fundinum verður sjónum beint að uppbyggingu og þróun tæknináms á Norðausturlandi.
Léttar veitingar og spjall í afslöppuðu andrúmslofti. Öll áhugasöm úr atvinnulífinu eru hvött til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðum.
Skráning fer fram hér að neðan.