Handverkshátíðinni verður haldin 10-13 ágúst 2023
Handverkshátíðin er haldin ár hvert aðra helgina í ágúst. Um 100 hönnuðir og handverksfólk selja fatnað, keramik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem oftar en ekki er unnið úr rammíslensku hráefni. Á útisvæðinu er hægt að bragða á og kaupa góðgæti frá Beint frá býli auk fjölda annarra aðila. Ýmsar uppákomur eru í boði alla dagana s.s. sýning á gömlum traktorum og miðaldabúðir.
Hátíðin fer fram í Eyjafjarðarsveit, við Hrafnagilsskóla 10 km sunnan við Akureyri.
Upplýsingar um viðburði og dagskrá hátíðarinnar má finna á heimsíðu, fésbókarsíðu Handverkshátiðar og Instagram.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á handverk@esveit.is
Símanúmer 867-2357 (Heiðdís Halla) og 847-0516 (Kristín Anna)