Kraftur-Orka
Öll verkin á sýningunni eru unnin úr notuðum rafmagnsvírum sem lokið hafa sínu hlutverki við það að flytja orku og kraft á milli staða. Nú hafa þeir fengið nýtt hlutverk með þráðum og fallegum litum og orðið listaverk. Hægt er að breyta um form og lögun á verkunum og leika með skuggaspil sem myndast af þeim.
Sökum aðstæðna í þjóðfélaginu verður eingöngu um gluggasýningu að ræða í þetta sinn. Ef einhverjar spurningar vakna þá er velkomið að hafa samband við listakonuna.
Anna Gunnarsdóttir, sími 8976064