Til baka

Body Weather námskeið með Frank van de Ven

Body Weather námskeið með Frank van de Ven

Helgarnámskeið í Body Weather með dansaranum og danshöfundinum Frank van de Ven.

Iceland Yurt og Þóra Sólveig eru að bjóða upp á helgarnámskeið í Body Weather með dansaranum og danshöfundinum Frank van de Ven, þann 16. og 17.júlí kl.10-16.00 báða dagana. Þetta námskeið er fyrir listafólk úr öllum greinum og fyrir þau sem hafa áhuga á skynjun, hreyfingu og þjálfun. Þetta er sérstaklega gott fyrir framkomu, gjörninga, dans og leiklist.

Frank van de Ven er frá Amsterdam og býr í Melbourne. Hann hefur þjálfað og kennt Body Weather og Body Landscape í áratugi en hann starfaði með Maijuku gjörningalistahópi japanska dansarans Min Tanaka, frá árunum 1983-1991. Min Tanaka stofnaði og þróaði Body Weather og eru starfandi Body Weather vinnustofur víða um heim. Þóra Sólveig gjörningalistakona hefur þjálfað í nokkur ár með Frank van de Ven og Katerinu Bakatsaki, og hefur skipulagt námskeið í Noregi og á Íslandi.

Boðið er upp á möguleika á að gista í Mongólíu tjaldi, yurt á meðan námskeiðið stendur og mun þjálfun m.a. fara fram í hand útskornu yurt í Gaia God/dess Temple Gaia hofið.

Hægt er að skrá sig hjá Sollu í info@icelandyurt.is

Hvenær
16. - 17. júlí
Klukkan
10:00-16:00
Hvar
Iceland Yurt Akureyri, Iceland
Verð
30.000kr