Til baka

Fab Lab - Almennir opnir tímar

Fab Lab - Almennir opnir tímar

Fab Lab Akureyri er stafræn smiðja sem er opin fyrir almenning og býður upp á aðgengi að laserskera, þrívíddarprentara, fræsara og fleiri nýsköpun.

Fab Lab (Fabrication Laboratory) er smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.

Opnir tímar fyrir almenning eru vanalega á fimmtudögum frá kl. 13-17 en vegna Uppstigningadags eru þeir færðir á þriðjudag að þessu sinni.

Allir eru velkomnir að kíkja við og skoða allt sem Fab Lab hefur upp á að bjóða. Útbúa skjöl í tölvum til þess að laserskera, vínylskera, fræsa, 3D prenta o.fl. Möguleikarnir eru endalausir. Fab Lab er hægt að finna í Verkmenntaskólanum á Akureyri, norðurinngangur.

Hvenær
þriðjudagur, maí 24
Klukkan
13:00-17:00
Hvar
Verkmenntaskólinn á Akureyri, Hringteigur, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald
Nánari upplýsingar

Hægt er að fylgjast með opnum tímum HÉR