Til baka

Fornbílahittingur á Listasumri

Fornbílahittingur á Listasumri

Kíktu á stífbónaða stálfáka við Menningarhúsið Hof

Félagar í fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar hittist á miðvikudögum kl. 20 við Menningarhúsið Hof. Þar verða til sýnis stífbónaðir stálfákar 25 ára og eldri. Líklega eru um áratugur síðan félagar í fornbíladeildinni byrjuðu að hittast á Ráðhústorgi öll miðvikudagskvöld en nú hafa þeir fært sig um set og eru núna við menningarhúsið Hof.

Allir velkomnir að skoða og spjalla!

Vinsamlegast athugið viðburðurinn er aðeins þegar veður er gott og ekki rigning. Best að fylgjast með nýjustu fréttum á facebook síðu þeirra: Bílaklúbbur Akureyrar Fornbíladeild

Fornbílahittingurinn er samstarfsverkefni Bílaklúbbs Akureyrar, Menningarfélags Akureyrar og Listasumars. Hittingurinn verður öll miðvikudagskvöld í sumar þegar veður leyfir.

*Viðburðurinn er hluti af Listasumri

Sjá nánar á Facebook HÉR

Hvenær
miðvikudagur, júlí 15
Klukkan
20:00-21:30
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Nánari upplýsingar

Enginn aðgangseyrir