Til baka

Hádegisfyrirlestur / Venjulegar konur - vændi á Íslandi

Hádegisfyrirlestur / Venjulegar konur - vændi á Íslandi

Fyrirlestur í tilefni af upphafi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi
Í tilefni af upphafi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem hefst 25. nóvember mun Brynhildur Björnsdóttir, höfundur bókarinnar Venjulegar konur - vændi á Íslandi segja frá bókinni og rannsóknum sínum við gerð hennar. Fyrirlesturinn fer fram á kaffihúsi Amtsbókasafnsins, Lestur Bistro. Öll hjartanlega velkomin.
 
Vændi hefur til skamms tíma ekki farið hátt í umræðunni enda hefur því alltaf fylgt skömm og launung. Brotaþolar vændis glíma við flóknar og alvarlegar afleiðingar vændisins, skelfilegar minningar og lífsreynslu sem erfitt getur verið að lifa með. Vændiskaup eru ólögleg hérlendis og teljast kynferðisbrot samkvæmt íslenskum lögum.

Samkvæmt lögreglunni og brotaþolum vændis er eftirspurnin eftir vændi þó gríðarleg hér á landi. Það er því mikilvægt að tala opinskátt um vændi, bæði á samfélagslegum grundvelli, og ekki síður hvernig má koma til móts við brotaþola vændis af skilningi og mannúð.
Hvenær
miðvikudagur, desember 7
Klukkan
12:15-13:00
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata, Akureyri