Til baka

Hættu að Væla Komdu að Kæla - Wim Hof Method. Akureyri

Hættu að Væla Komdu að Kæla - Wim Hof Method. Akureyri

Uppgötvaðu eigin hæfileika til að geta verið í lagi, sama hvað gengur á.
Við búum við stanslaust áreiti. Allt frá vægu áreiti til langvinnar streitu. Sem við höldum að sé ósjálfrátt og alfarið úr okkar höndum. Þessi streita getur valdið bóglum í líkamanum og komið huga okkar og heilsu úr jafnvægi.
Hvað ef, til væri einföld leið til að enduruppgötva eigin hæfileika til að ná aftur stjórn á ósjálfráðum viðbrögðum við streitu og áreiti alveg sama hvað gengur á? Læra að vera í auga fellibylsins.
 
Uppgötva kraftinn sem býr innra með okkur til þess að finna jafnvægi líkama, huga og tilfinninga
1- Máttur hugans: Að gefa sér tíma til að fylgjast með ómeðvitaðri hegðun, því sem við trúum og öðru því sem kemur í veg fyrir innri sátt. Uppfærum úrelt kerfi.
2- Öndun: Að hámarka aðferð líkamans á inntöku súrefnis og endurstilla taugakerfið. Sem leiðir af sér meira úthald, orku og styrkir ónæmiskerfið. Sem kemur af stað keðjuverkun jákvæðra breytinga á líkama og huga.
3- Kuldameðferð: Við lærum að taka á bólgum, langvinnu stressi, endursetja taugakerfið, sleppa tökum á streitu og hvernig við innleiðum allt þetta í okkar daglega líf.
4- Hreyfing: Uppgötvaðu mátt hugans yfir líkamanum og hvernig þú getur haft áhrif á kerfi hans.
 
Á þessu námskeiði lærir þú:
• Skilning á sambandi líkama og hugar
• Að nota öndun sem heilsubót
• Kulda nálgun. Að læra að sleppa tökum á erfiðleikum
• Kæling. Sem heilsutól
• Meðvituð hreyfing. Skilning á eigin líkama
• Vísindin á bak við aðferðina
 
Fyrir hverja:
Námskeið þetta er ætlað fyrir hverja sem vilja kanna eigin kraft og getu.
• Fyrir Úthaldið
• Fyrir Topp Heilsu
• Fyrir Langvinna Verki
• Fyrir Streitulosun
• Fyrir Andlega Heilsu
• Fyrir Þyngdarstjórnun
• Fyrir Betri Svefn
• Fyrir Aukna Einbeitingu
 
Námskeiðið hentar byrjendum vel en ekki síður þeim sem hafa unnið eitthvað með kulda áður, því hér lærir þú hvernig þú getur tekið iðkun þína upp á hærra plan og bætt heilsu þína til hins betra
 
Hvenær:
Helgarnámskeið 28.-29. Maí.
Laug. kl. 12:00-17:00 og Sun. kl. 9:00-14:00
* 23-27 Maí: 1.5kls. kynningarvideo á netinu
Hvar: Norður Akureyri - Njarðarnes 10, 603 Akureyri
 
Nánari upplýsingar: hi@andriiceland.com
 
*Athugið: Við bjóðum upp afslátt fyrir nema og öryrkja. Auk þess má dreifa greiðslum ef þörf er á. Hugsanlega er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttafélaginu þínu. Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.
*Mikilvægt: Þetta námskeið hentar ekki barnshafandi konum eða fólki með alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma. Vinsamlegast ráðfærðu þig við lækninn þinn varðandi heilsufar þitt áður en þú tekur þátt í námskeiðinu.
 
>Andri er stofnandi ANDRI ICELAND, umbreytandi vellíðunar- og heilsuþjálfunarstöð sem hefur að leiðarljósi aðferðir sem höfðu svo mikil áhrif á líf Andra að hann skilgreinir sjálfan sig sem “endurfæddan”. Vendipunkturinn þar sem áratugir af langvarandi, sárum verkjum í mjóbaki og mígreni hurfu loksins. Þessi umbreyting er það sem leiddi til þess að hann fór að miðla ávæningi kælimeðferðar, öndunaræfinga, hugarorku og hreyfingar, meðal annarra sannreyndra Mind-Body aðferða, til þúsunda manna. Með það að markmiði að leiðbeina öðrum í átt að sömu valdeflandi upplifun.
Innblásinn af áhrifum beinnar kennslu frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Mind-Body tækninnar hefur Andri orðið að fyrsta vali þeirra sem sækjast eftir umbreytandi þjálfunarupplifun sem á sér enga líka. Það er einfaldlega eitthvað algjörlega einstakt sem fólk upplifir við það að fara ofan í ískalt vatn, ögrar gömlum skoðanamynstrum, dýpkar skilning okkar á öndun, undir handleiðslu Andra. Þetta er einföld leið til þess að enduruppgötva getu þína til þess að ná aftur stjórn á sjálfvirkum streituviðbrögðum og læra að vera í lagi, sama hvað. Þetta er eins og að læra að vera til í auga stormsins.
Auk ýmis konar þjálfunar sinnar hefur Andri öðlast eftirfarandi viðurkenningar:
• Level 2 Wim Hof Method Certified Instructor
• Oxygen Advantage Certified Instructor
• XPT Certified Coach
• Buteyko Clinic International certified Instructor
Hvenær
28. - 29. maí
Hvar
Norður Njarðarnes, Njarðarnes 10, Akureyri
Verð
35.000