Handverkshátíðin verður næst haldin Hátíðin verður 10 til 13 ágúst 2023
Handverkshátíðin verður nú haldin í 28. sinn. Um 100 hönnuðir og handverksfólk selja fatnað, keramik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem oftar en ekki er unnið úr rammíslensku hráefni. Á útisvæðinu er hægt að bragða á og kaupa góðgæti frá Beint frá býli auk fjölda annarra aðila. Ýmsar uppákomur eru í boði alla dagana s.s. sýning á gömlum traktorum og miðaldabúðir.
Njóttu dagsins með okkur í Eyjafjarðarsveit.
Við erum í Hrafnagilsskóla 10 km sunnan við Akureyri.
Upplýsingar um viðburði og dagskrá hátíðarinnar má finna á heimasíðu, fésbókarsíðu Handverkshátiðar og Instagram.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á handverk@esveit.is