Hjólabrettanámskeið fyrir 6 ára og eldri
Námskeið fyrir byrjendur sem lengra komna.
Spennandi tveggja daga hjólabrettanámskeið fyrir 6 ára og eldri, stráka og stelpur, bæði byrjendur og lengra komnar. Farið verður í öll helstu grunnatriði íþróttarinnar og erfiðara fyrir þá sem geta. Sem dæmi má nefna hvernig á að standa, ýta sér, snúa við og jafnvel “olla”. Skipt verður í hópa eftir getu og yfirkennari námskeiðisins er Eiki Helgason brettakappi, sem er Akureyringum vel kunnur, og á að baki langan feril í brettaíþróttum. Með honum verður hjólabrettasnillingurinn Haraldur Logi Jónsson betur þekktur sem Harri.
Mælt er með því að þátttakendur komi með sitt eigið hjólabretti en möguleiki er á að fá lánsbretti. Taka skal fram í skráningu ef beðið er um lánsbretti. Takmarkað magn lánsbretta er í boði.
__________________________________
Námskeið fyrir: Byrjendur sem lengra komna
Dagsetning: 29.-30. janúar (laugardagur og sunnudagur)
Tími: 10.00 - 12.00 báða daga
Aldur: 6 ára og eldri
Staðsetning: Braggaparkið, Laufásgata 1
Þátttökugjald: 8.000 kr.
Hámarksfjöldi: 16
Skráning:
www.braggaparkid.is
Eftir skráningu þarf að senda eftirfarandi upplýsingar á
braggaparkid@gmail.com:
- Greiðslukvittun
- Nafn þátttakanda
- Nafn og símanúmer hjá forráðamanni
__________________________________