Hjólabrettaskóli Reykjavíkur heldur hjólabrettanámskeið á Akureyri fyrir börn og unglinga . Það eru Steinar Fjeldsted og Dagur Örn sem annast kennsluna en þeir hafa mikla reynslu af hjólabrettum og hjólabrettakennslu.
Farið verður í allar undirstöður hjólabrettisins eins og t.d hvernig á að standa á brettinu, beita hnjám, líkama O.fl. Fyrir þá sem eru lengra komnir verður farið í ögn flóknari trikk eins og Shuvit, Kickflip og 360 Flip svo sumt sé nefnt. Skipt verður í hópa eftir getu.
Námskeiðiði er 3 skipti, dagana 9. - 11. júlí kl 10:30 - 12:00 og kostar 11.900 kr fyrir öll 3 skiptin. Ekki skiptir máli hvort viðkomandi sé byrjandi eða lengra kominn en skipt verður í hópa eftir getu.
Námskeiðið er fyrir börn frá 6 ára aldri.
Hjólabrettaskóli Reykjavíkur á Facebook og Instagram
Viðburðurinn nýtur stuðnings Listasumars.
Skráning fer fram á hjolabrettaskoli@gmail.com
og í síma: 768-8606