Til baka

Hvað er Reddingakaffi?

Hvað er Reddingakaffi?

Spennandi kynning frá RVK Tool Library.

Munasafn RVK Tool Library er að vinna að göfugu verkefni sem felst í því að kynna og koma á fót Reddingarkaffi viðburðum út um allt land. Munasafnið RVK Tool Library fékk styrk frá Rannís til að standa að verkefninu.

Við munum fara um landið og kynna verkefnið, hvað Reddingakaffi viðburðir eru og hvernig á að skipuleggja þá. Vinsamlega athugið að kynningin verður á ensku en við verðum með fræðsluefni á íslensku og með í för er Íslendingur sem getur þýtt á milli ef þess er þörf. Við verðum með kynningu á Akureyri þann 14.júlí kl.14:00 á Amtsbókasafninu.

Eitt aðal markmiðið með þessu verkefni er að stuðla að sjálfbærara samfélagi með því að nýta kunnáttu þeirra sem kunna að lagfæra allskonar hluti og föt og kenna hana áfram svo að hún deyi ekki út. Með því að laga hluti sem eru þarfnast viðgerðar í staðin fyrir að henda þeim og kaupa nýja stuðlum við að minni kolvetnismengun og útgjöldin verða minni fyrir einstaklinga. Einnig er markmiðið að kynna réttinn til að lagfæra - the right to repair hreyfinguna og hvers vegna hún er mikilvæg.

 


Viðburðurinn er hluti af Listasumri

 

Hvenær
miðvikudagur, júlí 14
Klukkan
14:00
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir