Til baka

Íslenskuklúbbur Amtsbókasafnsins

Íslenskuklúbbur Amtsbókasafnsins

Vilt þú fá fleiri tækifæri til að æfa íslensku?

Við erum að byrja aftur með íslenskuklúbb á Amtsbókasafninu. Klúbburinn ætlar að hittast á kaffihúsi Amtsbókasafnsins, annan hvern fimmtudag kl. 16:30 til 17:30 frá 15. September. Allir eru velkomnir: byrjendur, þau sem eru lengra komin, eða tala reiprennandi, líka þau sem hafa íslensku sem móðurmál. Hugmyndin er að skapa tækifæri fyrir fólk sem er að læra íslensku til að æfa tungumálið. Við munum hjálpa hvert öðru og hafa gaman, spila orðaspil, lesa saman eða bara spjalla.

Nánari upplýsingar veitir Aija Burdikova, bókavörður, á netfanginu aija.burdikova@amtsbok.is

Hvenær
fimmtudagur, september 29
Klukkan
16:30
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald