Til baka

Jökulsárgljúfur (Demantshringur)

Jökulsárgljúfur (Demantshringur)

Rútu- og gönguferð með leiðsögn á vegum Travelíng Viking

Ferðin hefst við Menningarhúsið Hof á Akureyri en þaðan ökum við um Vaðlaheiðargöng á leið okkar að Goðafossi. Þar er okkar fyrsta stopp. Aðgengi að Goðafossi er mjög gott en fossinn sjálfur er einn fegursti foss á landinu.

Frá Goðafossi liggur leið okkar upp í Mývatnssveit, við ökum suður fyrir vatnið til að njóta sem best fegurðar Mývatnssveitar á leið okkar að Jökulsárgljúfrunum.

Jökulsárgljúfur eru talin hafa myndast í nokkrum stórum hamfarahlaupum í Jökulsá á Fjöllum fyrir árþúsundum síðan. Landið er þarna enn í mótun og sést það einmitt svo vel við þessa stóru fossa sem eru í Jökulsárgljúfrum. Við stoppum í góða klukkustund við Dettifoss sem er talinn aflmesti foss í Evrópu, ofan hans er Selfoss en neðan við Dettifoss er Hafragilsfoss.

Vesturdalur og Hljóðaklettar er einstaklega fallegt svæði en þar hefur áin rifið í sundur forna eldstöð svo eftir standa stórbrotnar stuðlabergsmyndanir og gígtappar. Við keyrum ofan í Vesturdal og skoðum þetta svæði og njótum þess að heyra bergmál árniðarins í klettunum sjálfum.

Ásbyrgi er gamall farvegur Jökulsár og sést þar forn stórbrotin fossabrún innst í byrginu. Engu að síður er þjóðtrúin gamla með okkur í för en í Snorra Eddu segir frá ferð Óðins um háloftin á hesti sínum Sleipni. Eitthvað hefur þeim félögum fundist tilkomumikið að heimsækja þetta landsvæði, því talið erð þeir hafi hægt svo á ferðinni að Sleipnir hafi þurft að spyrna einum af sínum sex fótum við jörð til að ná fluginu aftur. Þess vegna er Ásbyrgi þarna samkvæmt fornri trú í laginu eins og hóffar hests.

Við förum nú fyrir Tjörnes og inn til Húsavíkur. Við áætlum að vera komin þangað seinnipart dags og gefum ykkur tvær klukkustundir til að njóta þess að ganga um bæinn, fara á veitingahús eða söfn bæjarins, nú eða að dýfa ykkur í Geo Sea böðin áður en við ökum aftur til Akueyrar í ferðalok. 

Hvenær
laugardagur, júlí 17
Klukkan
08:00-20:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
16.000 kr
Nánari upplýsingar

ttv.is