Ekið frá Akureyri fram Eyjafjörð og upp á hálendið eftir Sprengisandsleið. Stoppað u.þ.b. tvær klukkustundir í Laugafelli þar sem fólki gefst kostur á að baða sig í heitri laug og skoða sig um. Aðstöðugjald í Laugafelli er innifalið í ferðinni.
Farið frá Laugafelli niður í Vesturdal í Skagafirði og þaðan til Varmahlíðar. Valin útsýnisstopp á leiðinni.
Eftir þægindastopp í Varmahlíð verður farið sem leið liggur aftur til Akureyrar.