Lausa Skrúfan á Glerártorgi!
Fulltrúar Lausu skrúfunnar verða á Glerártorgi að spjalla við gesti og gangandi!
Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, aðhvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Febrúar er mánuður Lausu skrúfunnar en sá mánuður er oft á tíðum kaldur og dimmur og því verður brýnt að huga vel að eigin geðheilsu
Við verðum á Glerártorgi á eftirfarandi tímum:
- Fimmtudagur 26. febrúar á milli 14 og 18
- Föstudagur 27. febrúar á milli 14 og 18
- Laugardagur 28. febrúar á milli 12 og 17
Endilega kíkið við og ræðið við nokkrar Lausar skrúfur. Einnig er hægt að lesa sér meira til um verkefnið á heimasíðunni okkar;
www.lausaskrufan.is
Sjáumst á Glerártorgi!