Til baka

Myndlist: Fjölröddun - Blóm

Myndlist: Fjölröddun - Blóm

Fjölröddun blóm er framhald sýningarinnar Fjölröddun (Polyphony) sem var í Listasafninu á Akureyri 2019-20 og opnar í Menningarhúsinu Hofi þann 5.mars kl. 15.00.

 

Titillinn Fjölröddun vísar til þess þegar lög skynjana vefjast hver um aðra og mynda mynstur í líkamanum. Grunnstef færist milli radda uns allar raddir fléttast saman en eru þó sjálfstæðar.

 

Björg Eiríksdóttir var í MA námi við myndlistardeild háskólans í Portó síðasta vetur, lauk MA í listkennslu frá HA vorið 2017, útskrifaðist frá fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2003 og lauk Bed frá KHÍ 1991. Hún starfar við myndlist samhliða kennslu myndlistargreina í VMA og listkennslu í LHÍ. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og er þetta tólfta einkasýning hennar.

 

Náttúran nærir okkur, og kennir okkur að skynja, bara til að skynja. Við skynjun hana ekki bara sjónrænt, heldur innan frá og út. Við horfum ekki bara á náttúruna, við erum í henni, finnum lykt, heyrum hljóð, snertum, hreyfumst,erum hreyfð, erum snert. Hver einasta skynjun byggist upp, lag eftir lag í líkamanum, og verður að heild innra með okkur. Ytra landslag verður að innralandslagi líkamans. Hringrás náttúrunnar speglast í hringrás líkamans. Andardráttur, hjartsláttur, flæði vatnsins í líkamanum speglast í takti og flæði náttúrunnar. Þegar við skynjum fegurð náttúrunnar á þennan hátt fyllumst við þörf til að deila upplifun okkar, gefa áfram gjöfina sem við höfum þegið. Við finnum hvernig við erum náttúra, erum hluti af þessari heild sem viðskynjum. Á þennan hátt renna hið fagurferðilega og hið siðferðilega saman. Í gegnum fagurferðilega upplifun vex innra með okkur siðferðileg afstaða tilnáttúrunnar, við skynjum hana sem sjálfstæðan veruleika sem hefur gildi í sjálfum sér.

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir umhverfisheimspekingur

Skrifað fyrir Fjölröddun í Listasafninu á Akureyri

 

Nature gives us nourishment, and teaches us to perceive, just to perceive. We don‘t perceive it only visually, but rather from the inside out. We don‘t just look at nature, we are in it, smell it, hear it, touch it, move in it, we are moved, are touched by it. Each perception builds up layer after layer in our body, and becomes one whole within us. The outer landscape becomes the inner landscape of the body. Nature‘s cycles are mirrored in the body‘s cycles. Breath, heartbeat, the flowing water in the body are mirrored in the rythms and flows of nature. When we perceive nature‘s beauty in this manner we are filled with a need to share our experience, give forward the gift we have received. We sense how we are nature, how we are a part of this whole we perceive. In this way, the aesthetic and the ethical intertwine. Through aesthetic experiences we grow an ethical attitude towards nature, we sense it as an independent reality that has value in and of itself.

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, environmental philosopher

 

Sýningin er opin til 17. apríl á opnunartíma hússins.

 

https://www.instagram.com/bjorgeiriksdottir/

https://www.arkiv.is/artist/615

http://bjorgeiriksdottir.com

Hvenær
5. mars - 17. apríl
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri