Til baka

Miðvikudagskonfekt

Miðvikudagskonfekt

Líf og fjör í Menningarhúsinu Hofi á miðvikudögum á Listasumri.

Það verður líf og fjör í Menningarhúsinu Hofi á miðvikudögum á Listasumri. Veitingarstaðurinn Eyrin, verslunin Kista og tónlistarfólkið Ívar Helgason og Jónína Björt taka höndum saman og bjóða upp á miðvikudagskonfekt í boði í Hofi frá kl. 17-19. Veitingastaðurinn Eyrin verður opinn með lifandi tónlist þar sem Ívar og Jónína flytja allskonar tónlist. Kista verður opin og mun hún færast nær veitingastaðnum. Þá verður sumarseðill á Eyrinni ásamt því að ,,Happy Hour” verður á barnum. ,,Búbblubar” verður settur upp á miðvikudögum þar sem hægt verður að gæða sér á konfekti og freyðivíni. Fornbílasýning verður á hverju miðvikudagskvöldi í kjölfarið á þessum viðburði fyrir þá sem hafa áhuga ásamt því að myndlistarsýning verður í gangi í allt sumar á vegum Menningarfélags Akureyrar.

Viðburðurinn er hluti af Listasumri og styrktur af Akureyrarbæ og Menningarfélagi Akureyrar

Sjá nánar á Facebook HÉR

Hvenær
miðvikudagur, júlí 22
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Nánari upplýsingar

Enginn aðgangseyrir