Til baka

Sigló, Síld og svolítið meira!

Sigló, Síld og svolítið meira!

Rútuferð með leiðsögn á vegum Traveling Viking

Þetta er svo sannarlega skemmtiferð. Byrjum á Akureyri kl 9:00 og förum frá Hofi. Við heimsækjum fallega staði í Hörgársveitinni á leið okkar út eftir Eyjafirðinum að vestanverðu. Sögustaðir á leiðinni hafa ekki bara þungar og forneskjulegar sögur að geyma, heldur líka fágætar og um margt svo bráðskemmtilegar minningar um fólk og mannlíf. Þessu öllu reynum við að gera góð og skemmtileg skil í þessari ferð okkar. 

Við heimsækjum Möðruvelli og fáum að vita ýmislegt um þann fallega stað, sem á sér mikla og merkilega sögu eða eigum við að segja sögur?
Fræðumst síðan um Hjalteyri en þar iðaði allt af mannlífi á árum áður og bera uppgerð húsin á Eyrinni þess skýr merki. Á Hjalteyri kíkkum við í heimsókn til Lene handverkskonu sem þar hefur hreiðrað um sig og vinnur að ýmsu fróðlegu og skemmtilegu sem við fáum að kynnast. Eftir þá heimsókn er best að skella í sig smá rúgbrauði og/eða síld og skola því niður með einhverju hressandi, svona áður en við leggjum í hann út á Sigló.

Siglufjörð þarf vart að kynna, þar réði jú síldin ríkjum á “sokkabandsárunum” eins og foreldrarnir okkar kölluðu sinn merkilega tíma í Íslandssögunni. “Syngjandi sæll og glaður” var hann pabbi gamli á Sigló og mamma “dansaði þar fram á nótt” kerlingargreyið, eftir að hafa saltað í tunnurnar liðlangan daginn. Heimsókn aftur í tíman er innifalin í þessari ferð er við heimsækjum síldarminjasafnið. Við ætlum að gefa ykkur “lausan tauminn” á Sigló og hitta ykkur í Bakaríinu eftir að þið hafið notið þess sem þið viljið skoða og gera á Siglufirðinum fagra. 

Förum nú að koma okkur til baka, en er ekki rétt að sjá hvernig Árskógstrendingar brugga sinn bjór og kíkka við í Bruggsmiðjunni (Kalda) hver veit nema við fáum að smakka jafnvel eitthvað á afurðum félagsins áður en við höldum heim á Akureyri í lok skemmtilegs dags.

Hættu nú að hugsa þetta og bókaðu bara ferðina sem fyrst áður en allt verður uppselt!

Hvenær
laugardagur, júlí 3
Klukkan
09:00-18:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
16:000 kr
Nánari upplýsingar

ttv.is