Hressandi og skemmtilegir söngleikjatónleikar þar sem Jónína, Ívar og Helena fara yfir sögu söngleikjanna. Stuttlega verður sagt frá verkunum og þróun söngleikjanna og sungið allt frá klassík yfir í rokk. Á efnisskránni verður t.d. tónlist úr West side story, Cats, Waitress svo eitthvað sé nefnt. Öll munu þau sjá um söng en Helena verður á píanó og Ívar á gítar.
*Viðburðurinn hlaut styrk frá Tónlistarsjóði, Héraðssjóði, Eyrin Restaurant og Listasumri
Sjá viðburð á Facebook HÉR