Til baka

Tvær í tangó og ein fiðla - danstónleikar

Tvær í tangó og ein fiðla - danstónleikar

Tangó og fiðla í Hömrum

Flytjendur eru tríóið: "Tvær í tango og ein fiðla" Það skipa þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir fiðluleikari, Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari og Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópransöngkona. Tónlistin á þessum tónleikum, sem haldnir eru í Hömrum, er helguð tangó og að sjálfsögðu geta tónleikagestir tekið með sér dansskóna og notið þess að dansa við lifandi tónlist flutta af frábærum listakonum. Íslenskir tangóar verða meginuppistaðan í dagskránni í bland við þekkta erlenda tangótónlist.

*Viðburðurinn hlaut styrk frá Listasumri.

Sjá viðburð á Facebook HÉR

Hvenær
fimmtudagur, júlí 23
Klukkan
12:30-13:30
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
3.500
Nánari upplýsingar

Miðasala á mak.is

Aðgangseyrir 3.500 kr.