Til baka

Við sláum lókal met

Við sláum lókal met

King og Bong sýna í Kaktus.
Þann 21. maí opnar King og Bong hurðirnar í Kaktus með sýningunni: Local Record Breaking Performances: Við sláum lókal met
Þar verða til sýnis leifar um nýslegin met, slegin af listamönnunum sjálfum.
King og Bong er tilraunakennt listamannarekið rými og samsteypa sem stofnað var í nóvember 2020 í miðbæ Reykjavíkur. Síðan þá hefur King og Bong staðið fyrir fleiri en 30 viðburðum á borð við myndlistarsýningar, partí, tónleika, gjörningakvöld og afmælisveislu.
King og Bong er lifandi en jafnframt tifandi tímasprengja sem vill ekki springa.
Markmið King og Bong er að gera meira, meira og meira!!

---------------
Kaktus er styrktur af Akureyrarbæ og SSNE

 

Hvenær
laugardagur, maí 21
Klukkan
16:00-23:00
Hvar
Ketilhúsið, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir