Til baka

Vorið vaknar

Vorið vaknar

Hinn vinsæli söngleikur Vorið vaknar er byggður á samnefndu þýsku leikriti frá 1891 eftir Frank Wedekind og fjallar um líf og tilfinningarót unglinga í afturhaldssömu og þröngsýnu samfélagi 19. aldarinnar sem leyfir engin frávik frá hinu viðtekna. Vinunum Melchior, Moritz og Wendlu gengur misvel að fóta sig í harðneskjulegum heimi fullorðna fólksins og verða ýmist fórnarlömb eða sigurvegarar. Vorið vaknar fjallar um fyrstu kynlífsreynsluna, skólakerfið, kvíða og frelsisþrá þar sem tilfinningum krakkanna er fundinn farvegur í melódískri rokktónlist sem endurspeglar þeirra innra líf. 

Uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006, hlaut átta Tony verðlaun og þar á meðal sem besti nýi söngleikurinn. Uppsetningin vann þar að auki fjölda annarra verðlauna og tilnefninga og hefur farið sigurför um heiminn allar götur síðan. Vorið vaknar er nú sett upp í fyrsta sinn í atvinnuleikhúsi á Íslandi.

Leikstjórn: Marta Nordal
Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir
Danshöfundur: Lee Proud
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson
Sýningarstjórn: Þórunn Geirsdóttir
Þýðing: Salka Guðmundsdóttir
Leikarar: Ahd Tamimi, Ari Orrason, Árni Beinteinn Árnason, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Eik Haraldsdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Viktoría Sigurðardóttir, Þorsteinn Bachmann og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir.

 

"SPRING AWAKENING”
Eftir Steven Slater og Duncan Sheik. Flutt með leyfi Nordiska APS Copenhagen

 

Hvenær
föstudagur, febrúar 28
Klukkan
20:00
Hvar
Samkomuhúsið, Akureyri
Nánari upplýsingar