Til baka

Ferðamannavegur um Norðurland

Dagskrá:

Miðvikudaginn 1.febrúar kl. 15.00 - 16.00 er boðið til kynningarfundar um ferðamannaveginn "Arctic Coastline Route".

Fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu og annað áhugafólk er hvatt til að mæta á fundinn!

Ferðamannavegurinn liggur að mestu meðfram standlengju Norðurlands milli Sauðárkróks og Vopnafjarðar og er tilgangurinn að þróa nýtt aðdráttarafl fyrir norðurhluta Íslands.  Verkefnið hófst árið 2016 og er tilgangur fundarins að gefa innsýn inn í markmið, áherslur og fyrstu skref.  Tækifæri gefst til umræðna og áhrifa á verkefnið og er m.a. leitað hugmynda á endanlegt nafn leiðarinnar.
Verkefnastjóri Arctic Coastline Route er Christiane Stadler; Dipl. Landfræðingur

Fundurinn fer fram á ensku.

Fundarstaður: Bæjarstjórnarsalurinn í Ráðhúsi Akureyrarbæjar, 4.hæð (Geislagötu 9). 

Með von um góðar undirtektir stýrihópur verkefnisins;

Gunnar Jóhannesson, María H. Tryggvadóttir,
Linda Lea Bogadóttir, Margrét Víkingsdóttir,
Halldóra Gunnarsdóttir og Bryndís Hallsdóttir

Skráðu nöfn þátttakenda á fundinum með kommu á milli.
captcha