Til baka

Ljúfsár kvöl í 400 ár - þrjár kynslóðir tónskálda

Ljúfsár kvöl í 400 ár - þrjár kynslóðir tónskálda

Ensemble Elegos flytur ítalska snemmbarokktónlist.
Fyrstu tónleikar upprunaflutningshópsins Ensemble Elegos á Íslandi verða í Akureyrarkirkju þann 14. maí kl. 20:00. Að þessu sinni er efnisskráin helguð þremur ítölskum tónskáldum 17. aldarinnar, þeim Claudio Monteverdi, Francesco Cavalli og Barböru Strozzi. Í blábyrjun 17. aldar urðu verk Monteverdis uppspretta ritdeilna vegna djarfrar notkunar á ómstríðum tónum. Einn nemenda Monteverdis var óperutónskáldið Francesco Cavalli, sem naut mikilla vinsælda í Feneyjum um miðja 17. öld, en sum verka hans voru einnig flutt í París á æskuárum Lúðvíks fjórtánda. Cavalli kenndi svo feneysku söngkonunni Barböru Strozzi, sem hóf feril sinn 16 ára gömul á stofutónleikum í húsi fósturföður síns og tók síðar virkan þátt í fundum menntamannahópsins sem hann stofnaði, Accademia degli Unisoni. Á tónleikunum hljóma verk eftir þessi þrjú tónskáld og við leitumst við að rannsaka hvernig tónlistarstefna berst frá kennara til nemanda en breytist einnig með hverju nýju tónskáldi. Miðaverð er 3.500 kr.
 
Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði.
Hvenær
þriðjudagur, maí 14
Hvar
Akureyrarkirkja, við Eyrarlandsveg, Akureyri
Verð
3.500 kr.