Paul Landon gestalistamaður Gilfélagsins í apríl opnar sýningu sýna í Deiglunni kl. 13 á laugardaginn 27. apríl. Hann býður gestum sýningarinnar í göngu um bæinn kl 14. Gangan tekur u.þ.b. klukkustund. Sýningin stendur til kl 18 og verður einnig opin sunnudaginn 21. apríl frá 13 – 18. Aðeins þessi eina sýningarhelgi.
Sýn á Akureyri er gönguferð og röð stafrænna teikninga sem fjalla um byggingu sjónrænnar skynjunar í þessari litlu norðurborg. Í göngunni er skoðað hvernig borgin hefur séð sjálfa sig, umhverfi sitt og umheiminn í gegnum tíðina.
Teikningarnar sýna vetrarborg þar sem skynjun byggingarlistar hefur verið umbreytt og þurrkuð út vegna veðurskilyrða.
Sýningin er opin helgina 27. – 28. apríl frá kl. 13 – 18.