Til baka

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - ÁSDÍS

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - ÁSDÍS

Stuttir, flottir tónleikar á listasafninu!
FRÁ JÖRÐU ÚT Í GEIM
 
Ör-tónleikar á Listasafninu á Akureyri laugardaginn 11. maí kl. 15 og aftur kl. 16!
 
Ásdís Arnardóttir sellóleikari frumflytur fyrir okkur verk Sunnu Friðjónsdóttur: Noises of the Blue Planet - The Creatures Slowly Wake Up.
Ádís flytur einnig sóló-sellósónötu Györgys Ligeti - Dialogo og Capriccio.
 
Ekki missa af þessari miklu selló- og tónlistarveislu!
 
Tónleikarnir eru um kortérs langir.
Þeir henta gestum á öllum aldri, og öllum þeim sem hafa gaman að, eða vilja forvitnast um tónlist, tóna og hljóð.
Aðgangur er ókeypis, aðgengi gott og öll hjartanlega velkomin!
Hvenær
laugardagur, maí 11
Klukkan
16:00-16:15
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Aðgangur ókeypis - Wstęp wolny - เข้าชมฟรี ยินดีต้อนรับทุกท่าน - entrée gratuite !