TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - ÁSDÍS
Stuttir, flottir tónleikar á listasafninu!
FRÁ JÖRÐU ÚT Í GEIM
Ör-tónleikar á Listasafninu á Akureyri laugardaginn 11. maí kl. 15 og aftur kl. 16!
Ásdís Arnardóttir sellóleikari frumflytur okkur verk Sunnu Friðjónsdóttur: Noises of the Blue Planet - The Creatures Slowly Wake Up.
Ádís flytur einnig sóló-sellósónötu Györgys Ligeti - Dialogo og Capriccio.
Ekki missa af þessari miklu selló- og tónlistarveislu!
Tónleikarnir eru um kortérs langir.
Þeir henta gestum á öllum aldri, og öllum þeim sem hafa gaman að, eða vilja forvitnast um tónlist, tóna og hljóð.
Aðgangur er ókeypis, aðgengi gott og öll hjartanlega velkomin!