Til baka

Centrum Hostel

 

Centrum Hostel er staðsett á 2. hæð í miðri göngugötunni þannig að stutt er í allt það besta sem bærinn hefur upp á að bjóða. Í sameigninni er að finna aðgang að eldavél, örbylgjuofni og ískáp ásamt öllum nauðsynlegustu eldhúsáhöldunum. Þar er einnig tilvalið að vafra á netinu, horfa á sjónvarpið eða bara að lesa bók í rólegheitum. 

Á Centrum Hostel er frítt þráðlaust internet (Wi-Fi) á öllum herbergjum sem og gervihnattasjónvarp með íslenskum sjónvarpsstöðvum og fjölda erlendra sjónvarpsstöðva.