Til baka

Deiglan - Gilfélagið

Í Deiglunni sem staðsett er í Listagilinu hefur Gilfélagið aðsetur. Gilfélagið var formlega stofnað 30. nóvember 1991. Starfsemi þess er styrkt af Akureyrarbæ og hefur það umsjón með Deiglunni og gestavinnustofu sem staðsett er efst í Listagilinu. Markmið félagsins er að efla menningar- og listalíf í bænum, auka tengsl almennings við listir og koma á samskiptum norðlenskra listamanna við innlenda og erlenda listamenn.