Til baka

Hálönd við Hlíðarfjallsveg

Hálönd
v/Hlíðarfjallsveg
Sími 460-6100
Heimasíða: www.halond.is
Netfang:info@halond.is

Hálönd eru orlofshús miðja vegu á milli miðbæjarins og skíðasvæðis Akureyringa. Í húsunum eru 3 rúmgóð herbergi og gistiaðstaða fyrir allt að 8 manns.

Í húsunum er heitur pottur, gasgrill o.fl. Húsin eru 108m2 og þarf um 6m2 geymsla fyrir viðlegubúnað. Í næsta nágrenni er fjöldi verkefna fyrir göngugarpa, skíðaaðstaða, mótorhjólabrautir, æfinga- og kappakstursbrautir, keppnis- og félagsaðstað hestamanna og margt fleira áhugavert. Húsin eru tilvalin fyrir stórfjölskylduna eða vinahópinn, ekki síst ef blanda á saman fríi, áhugamálum og útivist. Aðstaða fyrir fatlaða gesti er mjög góð. Gæludýr eru ekki leyfð.