Gisting og veitingar

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Gisting & veitingar

Ferðamannabærinn Akureyri býður gistimöguleika af öllu tagi og eru flest hótel og gistiheimili í námunda við miðbæinn. Gestir bæjarins geta valið á milli þess að gista á fyrsta flokks hótelum eða vinalegum gistiheimilum. 

Á Akureyri er að finna alla flóruna í veitingahúsum og skemmtistöðum. Úrvals veitingastaðir sem bjóða sælkeramat sem kitlar bragðlaukana eru á sínum stað en einnig er hægt að gípa skyndibita af ýmsu tagi á fjölmörgum veitingastöðum – og allt þar á milli. Víða er lögð áhersla á að bjóða upp á mat úr Eyjafirði. Alls eru um 1500 sæti á veitingastöðunum á Akureyri.

Kaffihúsin eru mörg og vinsæl og sum þeirra orðin að eins konar kennileitum í bænum. Sömu sögu er að segja um skemmtistaðina sem hafa sumir hverjir verið mærðir í sönglagatextum en ballstaðirnir spanna allt litrófið og eru fyrir alla aldurshópa.

 
SA SA 2m / s -1°
  • Mynd 3

Visitakureyri.is

Akureyrarstofa
Menningarhúsinu Hofi
600 Akureyri
Sími 450 1050
Kennitala 410169-6229
akureyrarstofa@akureyri.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu reglulega fréttir af viðburðum á Akureyri.

Við erum á Facebook

FacebookÞú getur líka fylgst með okkur á Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.