Iceland Express flýgur beint til Akureyrar yfir sumartímann frá Kaupamannahöfn, auk þess sem Icelandair býður upp á tengiflug síðdegis milli Keflavíkur og Akureyrar frá júní byrjun og út september (2012). Því til viðbótar er einfalt mál að fljúga til Íslands um Keflavík og þaðan frá Reykjavík til Akureyrar. Flugfélag Íslands heldur uppi áætlunarflugi á milli Akureyrar og Reykjavíkur og býður allt að 9 ferðir daglega. Flugið tekur 45 mínútur.
Þeir sem kjósa að keyra til Akureyrar frá höfuðborgarsvæðinu ættu að reikna með 4-5 klukkustundum til fararinnar og ef fólk kýs að ferðast með áætlunarbílum þá tekur sú ferð um 6 klukkustundir.
Á Akureyri og nágrenni eru mörg fyrirtæki sem bjóða upp á hópferðir í ökutækjum af öllum gerðum og stærðum, allt frá jeppum og upp í 74 sæta hópferðabíla. Eitt stærsta hópferðabílafyrirtæki landsins er með höfuðstöðvar á Akureyri og með áralanga reynslu í að sinna stórum hópum m.a. við móttöku skemmtiferðaskipa með allt að ríflega 3000 farþega.



Akureyrarstofa
Þú getur líka fylgst með okkur á
Fésbókinni. Alltaf eitthvað að gerast á Akureyri, ekki missa af neinu.