Akureyri Backpackers
Hafnarstræti 98
IS-600 Akureyri
Sími: 571-9050
Netfang: akureyri@backpackers.is
Vefsíða: akureyribackpackers.com
Facebook: @akureyribackpackers
Akureyri Backpackers er í hjarta Akureyrar og við sjálfa göngugötuna. Í boði eru 16 herbergi sem rúma frá 4 til 8 manns og 7 tveggja manna herbergi, en val er um svefnpokapláss eða uppábúin rúm. Sameiginlegar snyrtingar eru á öllum hæðum og sturtur og gufubað á þeirri neðstu. Sameiginlegt eldhús og grillaðstaða er í húsinu og í kjallara er þurrk-herbergi og skíðageymsla. Á jarðhæð hússins er ferðamiðstöð ásamt kaffihúsi og bar þar sem hægt er að njóta léttra veitinga og vafra um netið eða lesa blöðin.
Helstu veitingastaðir bæjarins eru í göngufjarlægð og örstutt í alla þjónustu en margar verslanir eru í miðbænum og Sundlaug Akureyrar er í aðeins 500 metra fjarlægð. Þá stendur Leikfélag Akureyrar við sömu götu, Menningarhúsið Hof er hinu megin við hornið og hinn landsfrægi tónleikastaður Græni Hatturinn er við hliðina á Akureyri Backpackers.
Netfang: akureyri@backpackers.is
Vefsíða: akureyribackpackers.com
Facebook: @akureyribackpackers