Til baka

Millilandaflug

Beint flug til og frá Akureyri

Edelweiss:  Flugfélagið býður upp á beint flug frá Zurich til Akureyrar í júlí og ágúst.  Flogið er einu sinni á viku til Akureyrar á föstudögum og tilbaka á laugardögum. Frekari upplýsingar og bókanir á www.flyedelweiss.com

* Voigt Travel: Býður upp á flug milli Akureyrar og Hollands hluta úr ári (sumar og vetur). Sumarið 2023 er flogið einu sinni í viku á mánudögum frá 5. júní - 28. ágúst. www.voigt-travel.nl

* Niceair: Stjórn og stjórnendur Niceair harma að þurfa að aflýsa öllu flugi frá og með 6. apríl 2023. Þetta er gert í ljósi þess að erlendur flugrekstraraðili félagsins, HiFly, hefur misst einu flugvél félagsins vegna vanskila HiFly við eiganda flugvélarinnar. Þetta gerir Niceair ómögulegt að standa við skuldbindingar gagnvart flugfarþegum.Býður upp á beint áætlunarflug til og frá Akureyri. Sjá nánar á: www.niceair.is 

* Ferðaskrifstofan Tur: Býður upp á flug milli Akureyrar og Færeyja hluta úr ári (vetur)

Allt árið er boðið upp á áætlunarflug frá fjölbreyttum áfangastöðum til og frá Keflavík. Úrval flugfélaga bjóða upp á flug og má m.a. nefna:
Icelandair: www.icelandair.is 
Play: www.flyplay.com
WizzAir: www.wizzair.com
SAS: www.flysas.com
Norwegian:www.norwegian.no
Easy Jet: www.easyjet.com 
British Airwaves: www.britishairways.com
Vueling Airlines: www.vueling.com

Tengiflug til Akureyrar í gegnum Reykjavík:   
Frá Keflavik er um 45 mínútna akstur til Reykjavíkurflugvallar og flugferðin með Icelandair til Akureyrar tekur eingöngu um 45 mínútur. 

Flug til Grænlands frá Akureyri:
Norlandair hóf áætlunarflug til austurstrandar Grænlands (Nerlerit Inaat) árið 2013. Flugvöllurinn er ekki staðsettur við þorpið Ittoqqortormiit, heldur er ferðast frá flugvellinum og yfir í þorpið með þyrlu, bát eða vélsleða.

Flugáætlunin er sem hér segir:

  • Janúar - febrúar (tvær ferðir í mánuði, annan hvorn miðvikudag).
  • Mars - september (einu sinni í viku, miðvikudagar).
  • Október - desember (tvær ferðir í mánuði, annan hvorn miðvikudag).

Þetta flug er í samstarfi við eftirfarandi aðila:

Hægt er að bóka á netinu á www.icelandair.com/is eða í síma 414 6960 (Norlandair). Ef viðskiptavinir ætla að nota þyrluna í þorpið þá er hún bókuð á vef Air Greenland www.airgreenland.com.

 Þeir sem hafa áhuga á að fara í sérferðir um austurströnd Grænlands er bent á Nonna Travel eða Paul Walker.