Til baka

Hótel Kjarnalundur

Hótel Kjarnalundur
Kjarnaskógur
IS-600 Akureyri
Sími: 460 0060 
Netfang: info@kjarnalundur.is
Vefsíða: www.kjarnalundur.is

Hótel Kjarnalundur er 66 herbergja hótel í aðeins 3,5 km fjarlægð frá miðbæ Akureyrar. Hótelið býður upp á notalegt og afslappað umhverfi með einstakri aðstöðu hvað varðar útiveru, heilsu og vellíðan. Náttúran umvefur hótelið sem gerir gestum kleift að endurnærast í snertingu við íslenska náttúru. Hótelið er staðsett í jaðri Kjarnaskógar sem er eitt vinsælasta útivistarsvæði Akureyringa.

Herbergin eru mismunandi að stærð frá 12m² upp í 25m² sem gefur gestum kost á að velja herbergi í mismunandi verðflokkum. Ein svíta er á hótelinu með setustofu, svefnherbergi og baðherberg. Öll herbergi eru með baði, sjónvarpi og þráðlausu neti.

Tveir veitinga- og fundarsalir eru á hótelinu. Boðið er upp á morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð. Kvöldverðarhlaðborð þarf að bókast með fyrirvara.

Við hótelið eru í boði úti heita pottar, infra rauður saunaklefi og möguleiki á að fara í nudd.

Húsið er á fjórum hæðum og er lyfta í húsinu. Gott aðgengi er fyrir fatlaða um allt húsið og eru 6 herbergi sérútbúin fyrir hjólastóla.

Í móttöku er kaffihúsastemning og það er frítt þráðlaust net á öllu hótelinu.

Í Kjarnaskógi rétt ofan hótelsins er meðal annars að finna gönguleiðir, blakvöll, leiktæki og sérhannaða fjallahjólabraut. Á veturna er troðin göngubraut fyrir skíðagöngufólk. 

 

Nánari upplýsingar

Netfang: info@kjarnalundur.is
Vefsíða: www.kjarnalundur.is