Til baka

Hrísey

Hrísey er ekki að ástæðulausu kölluð Perla Eyjafjarðar. Það tekur aðeins um 15 mínútur að sigla með ferjunni Sævari frá Árskógssandi út í eyju. Dvöl í Hrísey er upplifun sem óhætt er að mæla með.

Hrísey er hluti Akureyrarkaupstaðar en eyjan er í utanverðum Eyjafirði og er önnur stærsta eyjan við Ísland. Hún er um 7,5 km að lengd og 2,5 km að breidd þar sem hún er breiðust að sunnanverðu. Eyjan mjókkar til norðurs og þar rís hún hæst í um 110 m.y.s. þar sem stendur viti sem reistur var á svonefndum Bratta árið 1920. Vitinn er einn af sjö friðuðum vitum á Íslandi.

Norðurhluti Hríseyjar, Ystabæjarland, er alfriðað land í einkaeign. Sérstakt leyfi landeiganda þarf til að fá að fara um þann hluta eyjarinnar.

Í Hrísey er u.þ.b. 200 manna byggð í snyrtilegu sjávarþorpi með hellulögðum götum, ræktarlegum görðum og útsýni sem á sér fáa líka til fjallahringsins um Eyjafjörð.

Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar,  á einnar til tveggja stunda fresti (sjá áætlun) frá Árskógssandi. Tekur siglingin aðeins um 15 mínútur.

Í eynni er m.a. hægt að fara í skemmtilegar gönguferðir, fjöruferð, skoða hús Hákarla Jörundar, fara í sund eða bara njóta friðsældarinnar og fuglalífsins á þessum einstaka stað. 

Upplýsingar um gönguleiðir í Hrísey má finna hér, með kortum og leiðarlýsingum.