Nokkur fyrirtæki bjóða upp á aðstöðu fyrir pílukast, karoke og billard á Akureyri m.a.
Píludeild Þórs
Íþróttahúsið við Laugargötu
600 Akureyri
Sími:
Netfang: pila@thorsport.is
FB: Píludeild Þórs
Opið er fyrir almenning á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá kl 19.30 – 22.00.
Frítt fyrir meðlimi en fyrir aðra kostar hvert skipti (kvöld) kr. 2000 á mann.
Sjö pílubásar eru á staðnum.
Hægt er að bóka sértíma fyrir hópa.
Glerártorg, Gleráreyrar 1,
600 Akureyri
Sími: 571-9920
Heimasíða: https://akureyri.skorbar.is/
Netfang: akureyri@skorbar.is
Skor er ekki hefðbundinn pílubar heldur eru þar sameinuð pílukast og nútímatækni, þar sem tölvukerfi heldur utan um stig og hjálpar við val á leikjum. Fólk af öllum getustigum getur tekið þátt, þar sem leikirnir eru sniðnir þannig að allir geti skemmt sér, óháð reynslu.
Barinn býður upp á fjölbreytt úrval drykkja.
Í boði eru 8 pílubásar sem henta fyrir 2 til 12 manns hver.
Einnig er boðið upp á flott og vel hljóðeinangrað karaoke-herbergi, þar sem gestir geta sungið frægustu ABBA-lögin á fullum krafti – eins og enginn sé að hlusta. Rýmið hentar fyrir um 12-15 manns.
Duffy's Sport Bar & Pool
Gleráreyrar 1
600 Akureyri
Sími: 555 4055
Netfang: baldvin@verksmidjan.is
Heimasíða: Verksmidjan.is/darts
Staðsett í Glerártorgi verslunarmiðstöð, innaf veitingastaðnum Verksmiðjan. Tveir pílubásar og billjarðborð