Til baka

Dekur & vellíðan


Yoga og Heilsulindir  

Ómur Yoga & Gongsetur
Brekkugata 3A
IS-600 Akureyri
Sími: 862 3700                                                                                          
Netfang: omurakureyri@gmail.com
Heimasíða: www.omurakureyri.com 
Ómur er yogastöð sem býður upp á fjölbreytta yogatíma alla virka daga og er einnig eina gongsetur Íslands. Þar er hægt að fræðast um gong á námskeiðum og koma í vikulega gongslökun á þriðjudögum kl 20.15. Að jafnaði starfa 5-6 yogakennar á staðnum. Á Ómi er hægt að læra, vaxa og fá stuðning til að upplifa jákvæða breytingu á eigin lífi. 

Yoga Hofið
Sunnuhlíð 12
IS-600 Akureyri
Sími: 840 9440
Netfang: yogahofid@gmail.com
Heimasíða: yogahofid.is

Yogahofið er til húsa í litlum sal sem veitir meiri nánd við kennarann. Í boði eru tímar þar sem iðkendur hafa tíma og rými til að rækta yoga á líkama og sál.

Námskeiðin eru af margvíslegum toga og henta því flestum þörfum, jafnt fyrir byrjendur sem lengri komna. Kennarar koma víðsvegar að og nýta rýmið og kennsluna á sínum forsendum. Í boði er Karlayoga-Hatha-Vinyasa-hugleiðsla-yin-pilates-stoðkerfis yoga-róluyoga-meðgöngu og barna yoga-unglinganámskeið svo eitthvað sé nefnt.  Hægt er að panta einkatíma fyrir hópa/fyrirtæki.

Abaco 
Hrísalundur 1 
IS-600 Akureyri
Sími: 462 3200
Heimasíða: www.abaco.is
Abaco býður upp á margþætta þjónustu. Þar starfa nuddarar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingur, sjúkraliði og sjúkraþjálfari.
Opnunartími: Mán-Fös 10.00-18.00, Lau 11.00-17.00, Sun lokað.     

AquaSpa
Strandgata 
IS-600 Akureyri
Sími: 461 4445 
Vefsíða: www.aquaspa.is
Aqua Spa er nudd- og snyrtistofa í hjarta Akureyrar með fimm meðferðarherbergi.  Opnunartími: Mán-mið 9.00-18.00, fim 9.00-19.00, fös 9.00-18.00, lau 10.00-14.00, sun lokað. 

Inspiration Iceland
Knarrarberg, Eyjafjarðarsveit 
IS-605 Akureyri
Simi: 865 9429
Vefsíða: www.inspiration-Iceland.com
Inspiration Iceland býður upp á jóga, slökun og nudd.
Vellíðunarmiðstöð að Knarrarbergi, rétt utan Akureyrar, býður upp á slökun í ró og næði. Heitur pottur er utandyra, finnsk gufa og vellíðunarstofa með legubekkjum. Einnig boðið upp á meðferðir fyrir líkama.  Vellíðunarmiðstöðin er einungis opin fyrir hópa, hvort sem það eru fjölskyldur, vinahópar eða starfsmannahópar. 

Lind 
Sunnuhlíð 12 
IS-600 Akureyri
Sími: 462 1700 
Facebook: @snyrtistofanlind
Á Snyrtistofunni Lind er boðið upp á andlitsböð, litun og plokkun með heitsteinanuddi, fótsnyrtingu, handsnyrtingu, vaxmeðferðir, förðun, gervineglur og Tattoo. Einnig eru í boði öll helstu nudd: Slökunarnudd, heilsunudd, sogæðanudd, meðgöngunudd, ilmolíunudd og partanudd.
Opnunartími: Mán-fös 10.00-18.00, Lau- sun lokað.

Vökuland Wellness
Vökuland, Eyjafjarðarsveit
IS-605 Akureyri
Sími: 663 0498
Netfang: info@vokulandwellness.is
Heimasíða: vokulandwellness.is

Vökuland wellness er staðsett í hjarta Eyjafjarðarsveitar og býður upp á viðburði fyrir hópa og einstaklingsmeðferðir til aukinnar vellíðunar.  Yoga, djúpslökun, heildræn meðferð. Heitur pottur, kalt kar og viðarkynnt sauna er á útisvæðinu.  Fjölbreyttir slökunarviðburðir sniðnir að hverjum og einum hópi í mongólska kyrrðarhofinu.  Einnig er í boði Bowen slakandi meðferð og Regndropadekur með kjarnaolíum.