Til baka

Mikilvæg öryggisatriði

Vinsamlegast athugið að það getur verið varasamt og á stundum hættulegt að ferðast um í óbyggðum eða íslensku fjallendi. Veður geta breyst fyrirvaralaust og aðstæður orðið þannig að erfitt er að ráða við þær.

Rétt leiðarval, góð áætlun og réttur búnaður eru lykilþættir í vel heppnaðri hjólaferð. Leiðarval skal taka mið af getu, líkamsformi, reynslu og þekkingu á leiðinni sem valin er.

  • Ávallt skilja ferðaáætlun eftir hjá traustum aðila eða skrá á safetravel.is.
  • Áætla tímalengd ferðar, halda sig við ferðaáætlunina, ef þarf að breyta, láta þá vita af því.
  • Ætíð kvitta í gestabók ef hún er til staðar, það er ekki eingöngu kurteisi heldur mikilvægt öryggisatriði.
  • Klæddu þig miðað við veður og aðstæður. 
  • Kynntu þér leiðina fyrirfram og veldu þér leið miðað við getu. Taktu með þér GPS tæki og kort.
  • Gangtu vel um náttúruna. Haltu þig á slóðum og stígum. Haltu á hjólinu yfir viðkvæma staði.
  • Haltu hraðanum innan getu þinnar. Ef þú hefur ekki lengur full stjórn á hjólinu, hægðu þá á þér. 

Sjá meðfylgjandi kynningarmyndband á SafeTravel um hjólreiðar og hvers ber að gæta og hvað er gott að hafa meðferðis

Gagnlegar síður fyrir hjólreiðafólk:
www.vedur.is
www.safetravel.is 
www.vegagerdin.is