Til baka

Akureyrarkirkja

Við Eyrarlandsveg
600 Akureyri
Sími: 462 7700
Netfang: akirkja@akirkja.is
Heimasíða: www.akureyrarkirkja.is

Akureyrarkirkja var vígð árið 1940. Kirkjan var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, þáverandi húsameistara ríkisins. Í kirkjunni er meðal annars mjög sérstakur gluggi en lengi var talið að hann hafi upphaflega verið í dómkirkjunni í Coventry. Líklegra er þó að hann sé úr kirkju í Lundúnum eins og síðar rannsóknir hafa leitt í ljós.

Á svölum kirkjuskipsins eru lágmyndir eftir Ásmund Sveinsson. Skírnarfontur kirkjunnar er gerður eftir fyrirmynd Bertels Thorvaldsens.

Sumaropnun:
2. júní – 28. ágúst: 10-16
Nánast undantekningarlaust er kirkjan lokuð þegar athafnir eru í henni.

ATH!
Athygli skal vakin á því að kirkjan er lokuð þegar útfarir eða aðrar athafnir fara fram og er það auglýst sérstaklega á kirkjudyrunum. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að skoða heimasíðu kirkjunnar akureyrarkirkja.is eða hafa samband í síma 462 7700 eða á netfangið akirkja@akirkja.is.

Frekari upplýsingar um aðrar kirkjur á Akureyri má finna hér að neðan:

Glerárkirkja

Péturs kirkja

Grímseyjarkirkja

Hríseyjarkirkja