Upplifðu náttúruna á dýpri hátt
Á Akureyri og Eyjafirði leynist meira en það sem augað sér. Huliðsheimar byggja á sýn Erlu Stefánsdóttur, listakonu og sjáanda sem lýsti landinu sem lifandi heild fullri af orku, tengingum og ósýnilegum víddum.
Samkvæmt hennar skynjun liggur net orkustrauma um landslagið, þar sem fjöll, dalir og firðir tengjast í einni samfelldri heild. Þessir straumar eiga upptök sín meðal annars í Hofsjökli og leita norður í gegnum Eyjafjörðinn, þar sem þeir styrkjast í kringum Kaldbak – sem er eitt helsta orkusetur svæðisins sem tengt er jafnvægi, vexti og endurnýjun.
Í þessu lifandi landslagi fléttast saman náttúra og þjóðtrú. Í hlíðum Vaðlaheiðar og víðar annarsstaðar má finna staði sem tengdir eru sögum um álfa og huldufólk – verur sem samkvæmt hefð lifa samhliða mannheimum. Þessar frásagnir endurspegla djúpa virðingu fyrir náttúrunni og þeim dulda veruleika sem hún kann að geyma.
Kort Huliðsheima býður þér að kanna þessa staði með opnum huga. Gakktu um landslagið, staldraðu við og leyfðu umhverfinu að hafa áhrif á þig. Sumir staðir kunna að veita ró, innblástur eða sérstaka tengingu við landið og sögu þess.
Upplifunin snýst ekki um að sjá eitthvað ákveðið, heldur að skynja. Hún er boð um að hægja á, hlusta og finna tengslin við náttúruna – og sjálfan þig.
Kjarni upplifunarinnar er einfaldur:
Allt í náttúrunni er tengt – og með meðvitund og nærveru verðum við hluti af þeirri heild.