Til baka

Norðurstrandarleiðin - Arctic Coast Way

Norðurstrandarleiðin er aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem vilja halda sig utan alfaraleiðar og gera það með því að fara meðfram strandlengju Norðurlands. Samtals er leiðin um 900 kílómetra löng. Á leiðinni eru fjölmargir bæir eða þorp og auk þess fjórar eyjar, sem auðveldlega er að hægt að komast út í með bát eða ferju.
Ferðafólk sem fer þessa leið fær tækifæri til að ná betri tengslum við náttúruna, litskrúðugt menningarlíf og einnig hið daglega amstur þeirra sem búa í nálægð við norðurheimskautsbauginn.

Í maí 2019 var Norðurstrandaleiðin / Arctic Coast Way valin á topp 10 lista yfir þá áfangastaði í Evrópu sem best er að heimsækja, að mati Lonely Planet sem er einn vinsælasti útgefandi ferðahandbóka í heiminum. Listann má skoða hér: https://www.lonelyplanet.com/best-in-europe

Þetta er mikil viðurkenning fyrir allt það starf sem nú þegar hefur verið unnið við að koma Arctic Coast Way af stað, en leiðin verður formlega opnuð þann 8. júní 2019. Í umfjöllun Lonely Planet segir meðal annars að á leiðinni sé að finna allt það besta sem Íslandi hafi að bjóða, en um fáfarnari slóðir. „Frá söguslóðum til miðstöðva hvalaskoðunar, þá býður hvert lítið þorp og bær upp á innsýn inn í lífið á toppi veraldarinnar,“ segir meðal annars í umfjölluninni.

Leiðin var formlega opnuð þann 8. júní 2019.

Heimasíða Norðurstrandarleiðarinnar og nánari upplýsingar.

Nánari upplýsingar

Leiðarlýsing til vesturs:
Google maps
Vegnúmer: 1, 82, 76, 75, (748), 744, 745, 74, 1, 717, 711, 72
Vegalengd frá Akureyri: 410 km


Leiðarlýsing til austurs:
Google maps
Vegnúmer: 1, 83, 835, 1, 85, 870, 874, 875, 85 (869), 
Vegalengd frá Akureyri: 410 km