Til baka

Glerárdalur

Glerárdalur er fólkvangur sem liggur upp af Akureyri. Um dalinn rennur áin Glerá. Dalurinn hentar vel til útivistar og liggur um hann gönguleið inn að Lamba, húsi Ferðafélags Akureyrar. Húsið var byggt árið 2014 og kom í staðinn fyrir eldri byggingu sem stóð á sama stað.

Hægt er að fara í skipulagðar göngur á vegum Ferðafélags Akureyrar (FFA) inn að Lamba en einnig er hægt að útvega sér kort m.a. hjá FFA og fara á eigin vegum. Frá vegi að skálanum er stikuð gönguleið, 10-11 km. 

Gistirými er fyrir 16 manns í Lamba. Olíukabyssa og áhöld eru í skálanum. Lækur skammt sunnan skálans. Fjölbreyttar gönguleiðir frá skálanum um fjöll og dali á Glerárdalssvæðinu. Forstofa er opin en innriskáli er læstur svo panta þarf gistingu fyrirfram á skrifstofu FFA.
Staðsetning skálans er:  65°34.880 - 18°17.770 og hæð yfir sjávarmáli 720m. Sjá myndir af skálanum á vef FFA.

Kort af fólkvanginum.

Að upphafi gönguleiðar er ekið upp að bílastæðinu við enda Súluvegar - sjá kort hér til hliðar. Þaðan liggur gönguleiðin inn dalinn og þar má einnig finna upphafið að gönguleiðinni upp á Súlur.

Nánari upplýsingar


Leiðarlýsing:

Google maps

Staðsetning:
65.653451, -18.172670 (65° 39.207'N, 18° 10.360'W)

Vegur: Súluvegur

Vegalengd frá miðbænum:
5.5 km